Monday, November 15, 2010

litla systir mín og kanínan

ég á kanínubangsa sem er alveg rosalega sætur og ég held ótrúlega mikið upp á. litla systir mín sem er bara 1 árs en elskar þennan bangsa og engann annan og það sem gerist þá er að við erum alltaf að rífast um bangsann. um daginn þá sá mamma svolítið fyndið, litla systir var að gefa bangsanum cheerios ( serjós ) að borða við morgunverðarborðið og svo þegar hún átti að fara í leikskólann þá var bjó hún um hann með kodda undir höfðinu og sæng ofan á sér. hún heldur greinilega mikið upp á þennan bangsa og þegar ég er hætt að leika mér með hann þá ætla ég að gefa henni hann.

Wednesday, November 10, 2010

ÍSKISI



Þessi kisi hefur verið að smakka ís í fyrsta sinn og mér sýnist hann vera ánægður. Auk þess er hann með svolítið flotta tungu!
Þessi ís minnir mig á ísinn sem við fengum í jó, jó ísbúðinni sem er kópavogi á nýbílavegi 18. Fyrir alla þá sem hafa ekki prófað jó, jó þá er hún geggjuð, en ef að þú hefur prófað hana þá veistu örugglega hvað ég er að tala um.